Viðskiptaskilmálar
Seljandi
KRÓ Design, Kjartan Reynir Ólafsson, kt. 030897-2429, Sigluvík, 606 Akureyri. Netfang: kro@krodesign.is.
Pantanir
Pöntun er bindandi þegar greiðsla hefur borist. Staðfesting er send í tölvupósti. Ef vara reynist uppseld höfum við samband og endurgreiðum að fullu.
Verð
Öll verð eru í íslenskum krónum. Sendingarkostnaður kemur fram áður en greitt er.
Greiðsla
Greitt er með greiðslukorti á öruggri greiðslusíðu Verifone. KRÓ Design fær aldrei aðgang að kortaupplýsingum.
Afhending
Pantanir eru sendar með Dropp, á afhendingarstað eða heim að dyrum. Á Akureyri og Svalbarðsströnd (póstnúmer 600, 603 og 606) bjóðum við fría heimsendingu, eða að pöntunin sé sótt. Við stefnum að því að senda pantanir innan 3 virkra daga. Áhætta af vöru flyst til kaupanda við afhendingu.
Skilaréttur
Samkvæmt lögum nr. 16/2016 um neytendasamninga hefur þú 14 daga frá móttöku vöru til að falla frá kaupum án þess að gefa upp ástæðu. Láttu okkur vita á kro@krodesign.is. Varan þarf að vera ónotuð og í upprunalegu ástandi. Kaupandi greiðir sendingarkostnað við skil. Við endurgreiðum vöruverð og upphaflegan sendingarkostnað innan 14 daga frá því að varan berst okkur.
Gallar
Ef vara er gölluð eða skemmd við móttöku, hafðu samband sem fyrst og við bætum úr með viðgerð, nýrri vöru eða endurgreiðslu, í samræmi við lög um neytendakaup nr. 48/2003.
Lög og varnarþing
Um skilmála þessa gilda íslensk lög. Rísi ágreiningur má leita til kærunefndar vöru- og þjónustukaupa.