Persónuverndarstefna
Þessi síða útskýrir hvaða upplýsingum KRÓ Design safnar þegar þú heimsækir þessa vefsíðu og hvernig þær eru notaðar.
Ábyrgðaraðili persónuupplýsinga á þessari vefsíðu er Kjartan Reynir Ólafsson, eigandi KRÓ Design.
Þessi vefsíða notar GoatCounter, persónuverndarvæna greiningarþjónustu sem notar engin vafrakökur og safnar engum persónugreinanlegum upplýsingum, til að telja heimsóknir og síðuflettingar. Fyrir hverja síðuflettingu er skráð hvaða síða var skoðuð, ásamt vísandi síðu, vafra, skjástærð og landi, en IP-talan þín er aldrei geymd né neitt annað sem auðkennir þig. Auglýsingamælingar eru ekki notaðar. Tengiliðaeyðublaðið er auk þess varið gegn ruslpósti með földum gildrureit og innbyggðri ruslpóstsíu Netlify. Google kemur þar hvergi við sögu.
Ef þú notar tengiliðaeyðublaðið eru upplýsingarnar sem þú sendir inn (nafn, netfang og skilaboð) unnar og geymdar af hýsingar- og eyðublaðaþjónustu okkar, Netlify, Inc., eingöngu til að koma skilaboðunum til okkar. Ef þú sendir okkur tölvupóst í staðinn notum við skilaboðin og tengiliðaupplýsingarnar eingöngu til að svara fyrirspurn þinni eða pöntun. Við notum þessar upplýsingar ekki í neinum öðrum tilgangi.
Þegar þú pantar vöru söfnum við nafni, netfangi, símanúmeri og heimilisfangi til að afgreiða og senda pöntunina. Þessum upplýsingum er deilt með Dropp (sending), Verifone (greiðsla, kortaupplýsingar fara eingöngu til þeirra) og Resend (pöntunarstaðfestingar í tölvupósti), og þær eru geymdar hjá Netlify. Kort af afhendingarstöðum Dropp á greiðslusíðunni er birt með Mapbox. Við geymum pantanir eins lengi og bókhaldslög krefjast. Ef greiðsla klárast ekki er upplýsingunum eytt sjálfkrafa eftir 30 daga, eða í síðasta lagi eftir 60 daga ef ekki tekst að staðfesta hjá greiðsluþjónustunni að ekkert hafi verið greitt.
Þessi vefsíða er hýst hjá Netlify, Inc., en innviðir þeirra eru aðallega staðsettir í Bandaríkjunum, sem þýðir að ákveðin gögn (þar á meðal skilaboð úr tengiliðaeyðublaðinu og grunn tæknilegar upplýsingar á borð við IP-tölu og tegund vafra) eru flutt út fyrir Ísland og Evrópska efnahagssvæðið. Þessi flutningur er tryggður með stöðluðum samningsskilmálum (Standard Contractual Clauses), líkt og lýst er í persónuverndarstefnu Netlify. Sjá nánar hvernig Netlify meðhöndlar gögn
Ef þú hefur spurningar um þessa stefnu eða þínar upplýsingar, hafðu samband við okkur á: kro@krodesign.is