Hvað er PLA?
Stutt yfirlit á PLA-efninu: úr hverju það er, eiginleikar þess og umhirða.
Úr hverju er PLA?
PLA (fjölmjólkursýra) er plast úr endurnýjanlegum hráefnum, t.d. maíssterkju eða sykurreyr, og algengasta efnið í þrívíddarprentun.
Eiginleikar og umhirða
PLA er hart og sterkt en getur brotnað við þungt högg, og það mýkist við um 60 °C. Því er best að geyma hlutinn ekki í heitum bíl eða í sól við glugga, né setja hann í uppþvottavél.
PLA og umhverfið
Hægt er að brjóta PLA niður í iðnaðarjarðgerð, en í heimamoltu og úti í náttúrunni gerist það mun hægar.
Nánar um PLA á Wikipedia (á ensku)