Hjartalöguðu ljósin
Á Akureyri eru rauðu umferðarljósin í laginu eins og hjarta, en hvers vegna?
Margrét Blöndal, fjölmiðlakona, stýrði verslunarmannahelginni sumarið 2008. Árin þar á undan hafði mikið gengið á í skipulagi verslunarmannahelgarinnar, m.a. vegna drykkju ungmenna og deilna á milli sveitarfélagsins og viðburðarhaldara. Margrét vildi bæta ímynd og andrúmsloft hátíðarinnar. Margrét fékk þá hugmynd að setja pappaspjöld í rauðu umferðarljósin á Akureyri til að mynda hjörtu. Bæjarstjóri og sýslumaður tóku vel í hugmyndina. Innblástur að hugmyndinni fékk hún frá dóttur og bróðurdóttur sinni sem búsettar eru í Brussel, en þar sáu þær hjarta límt á umferðaljós í tilefni Valentínusardagsins.
Síðan þá hafa hjörtun orðið eitt af táknum Akureyrar og vinsælt myndefni ferðamanna. Sumarið 2025 fór Vegagerðin fram á að hjörtun yrðu fjarlægð þar sem þau stæðust ekki nýjar reglur um umferðarljós. Akureyringar komu ljósunum til varnar og sýndu rauðu hjörtunum stuðning meðal annars í gegnum færslu Höllu Tómasardóttur um málefnið á Instagram. Nú er til skoðunar hvort reglunum verði breytt þannig að hjörtun fái að vera áfram. Baráttunni er ekki lokið, en hjörtun slá enn.
Hvað sem verður um ljósin þá verður þetta hjarta þitt, lítil minning frá Akureyri.
Hannað og framleitt á Akureyri.